Employee trips
/
Sköpun & Upplifun
/
Reykjavík
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Flóki Whisky: Íslensk viskísmökkun með Eimverk
Skálið með vinnufélögunum og kynnist íslensku viskíi frá fyrstu hendi, fróðleg og bragðgóð upplifun þar sem íslenskt handverk, saga og góðir drykkir fara saman.
Í heimsókn til Eimverks, heimili Flóki Whisky, fær hópurinn að skyggnast á bak við tjöldin og kynnast því hvernig íslenskt viskí verður til. Flóki er framleitt úr 100% íslensku byggi og áhersla er lögð á íslenskt hráefni og handverk í framleiðslunni.
Leiðsögumaður tekur á móti hópnum og segir frá sögu Eimverks, framleiðslunni og hugmyndunum á bak við drykkina. Að sjálfsögðu fær hópurinn svo að smakka afurðirnar og kynnast ólíkum bragðtónum og einkennum þeirra.
Smökkunin einskorðast ekki við viskíið því auk Flóki Whisky fær hópurinn að kynnast öðrum íslenskum drykkjum Eimverks, þar á meðal Vor gin og Víti brennivíni.
Viljið þið frekar halda upplifunina á vinnustaðnum? Eimverk getur einnig komið til fyrirtækja og haldið smökkun fyrir hópinn á staðnum, skemmtileg leið til að færa íslenska viskíupplifun beint til vinnufélaganna.
Frábær afþreying fyrir hópa sem vilja prófa eitthvað öðruvísi, fræðast um íslenska framleiðslu og njóta góðrar stundar saman.
Athugið: Um áfengissmökkun er að ræða og því gildir 20 ára aldurstakmar k.
Lengd: Rúmlega 1 klukkustund í heimsókn hjá Eimverki.
Innifalið: Kynning og fræðsla ásamt smökkun á Flóki Whisky og öðrum afurðum Eimverks, meðal annars Vor gin og Víti brennivíni.
Staðsetning: Eimverk Distillery, Lyngás 13, 210 Garðabær eða hjá ykkur.
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.


