Flóki Whisky: Íslensk viskísmökkun
Skálið með vinnufélögunum og kynnist íslensku viskíi frá fyrstu hendi, fróðleg og bragðgóð upplifun þar sem íslenskt handverk, saga og góðir drykkir fara saman.
Hópurinn fær að kynnast því hvernig íslenskt viskí verður til. Flóki er framleitt úr 100% íslensku byggi og áhersla er lögð á íslenskt hráefni og handverk í framleiðslunni.
Leiðsögumaður tekur á móti hópnum og segir frá sögu Eimverks, framleiðslunni og hugmyndunum á bak við drykkina. Að sjálfsögðu fær hópurinn svo að smakka afurðirnar og kynnast ólíkum bragðtónum og einkennum þeirra.
Smökkunin einskorðast ekki við viskíið því auk Flóki Whisky fær hópurinn að kynnast öðrum íslenskum drykkjum, þar á meðal Vor gin og Víti brennivíni.
Viljið þið frekar halda upplifunina á vinnustaðnum?
Hægt er að bóka einnig komið til fyrirtækja og haldið smökkun fyrir hópinn á staðnum, skemmtileg leið til að færa íslenska viskíupplifun beint til vinnufélaganna.
Frábær afþreying fyrir hópa sem vilja prófa eitthvað öðruvísi, fræðast um íslenska framleiðslu og njóta góðrar stundar saman.
Athugið: Um áfengissmökkun er að ræða og því gildir 20 ára aldurstakmar k.
Lengd: Rúmlega 1 klukkustund
Innifalið: Kynning og fræðsla ásamt smökkun á Flóki Whisky og öðrum afurðum, meðal annars Vor gin og Víti brennivíni.
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.


