Employee trips
/
Afþreying
/
Reykjavík
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Premium hvalaskoðun með Eldingu, ævintýri á Faxaflóa
Hraði, hafið og hvalir í návígi, spennandi upplifun fyrir hópa sem vilja komast aðeins nær náttúrunni og upplifa alvöru ævintýri á sjó.
Stigið um borð í hraðskreiðan RIB-bát við Gömlu höfnina og haldið út á Faxaflóa í leit að hvölum, höfrungum og öðru lífríki. Hér eruð þið í mikilli nálægð við hafið og náttúruna, með ferskt sjávarloftið í andlitinu og stórbrotið útsýni allt í kring.
Báturinn tekur aðeins 12 farþega, sem gerir upplifunina persónulega og spennandi. RIB-báturinn kemst hratt yfir og nálægðin við yfirborð sjávar gefur ferðinni sannkallaðan ævintýrablæ. Þegar hvalur eða höfrungur lætur svo sjá sig verður augnablikið enn magnaðra,það er fátt sem jafnast á við að upplifa villt dýralíf svona nálægt í sínu náttúrulega umhverfi.
leiðsögumaður er með í för og segir frá dýralífinu, hafinu og því sem verður á vegi hópsins. Þar sem náttúran sér um dagskrána er engin ferð nákvæmlega eins.
Frábær hópafþreying fyrir þá sem vilja sameina smá hraða, ævintýri og einstaka nálægð við íslenska náttúru og skapa minningu sem verður örugglega rædd yfir kaffinu daginn eftir.
Innifalið: hlýjir flotgallar, björgunarvesti og nauðsynlegur öryggisbúnaður
Staðsetning: Ægsigarður 5c, 101 Reykjavík
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.




