RIB hvalaskoðun

Á sjó

Reykjavík

Stærð hóps

8–16 manns

Verð frá

21.990 kr

Premium hvalaskoðun með Eldingu, ævintýri á Faxaflóa


Hraði, hafið og hvalir í návígi, spennandi upplifun fyrir hópa sem vilja komast aðeins nær náttúrunni og upplifa alvöru ævintýri á sjó.


Stigið um borð í hraðskreiðan RIB-bát við Gömlu höfnina og haldið út á Faxaflóa í leit að hvölum, höfrungum og öðru lífríki. Hér eruð þið í mikilli nálægð við hafið og náttúruna, með ferskt sjávarloftið í andlitinu og stórbrotið útsýni allt í kring.


Báturinn tekur aðeins 12 farþega, sem gerir upplifunina persónulega og spennandi. RIB-báturinn kemst hratt yfir og nálægðin við yfirborð sjávar gefur ferðinni sannkallaðan ævintýrablæ. Þegar hvalur eða höfrungur lætur svo sjá sig verður augnablikið enn magnaðra,það er fátt sem jafnast á við að upplifa villt dýralíf svona nálægt í sínu náttúrulega umhverfi.


leiðsögumaður er með í för og segir frá dýralífinu, hafinu og því sem verður á vegi hópsins. Þar sem náttúran sér um dagskrána er engin ferð nákvæmlega eins.


Frábær hópafþreying fyrir þá sem vilja sameina smá hraða, ævintýri og einstaka nálægð við íslenska náttúru  og skapa minningu sem verður örugglega rædd yfir kaffinu daginn eftir.


Innifalið:  hlýjir flotgallar, björgunarvesti og nauðsynlegur öryggisbúnaður 


Staðsetning: Ægsigarður 5c, 101 Reykjavík


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.