Employee trips
/
Slökun
/
Hvalfjörður
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Heitar laugar í Hvammsvík
Hvammsvík er einstök náttúruupplifun í Hvalfirði þar sem heitar laugar, sjórinn og íslensk náttúra mætast á einum fallegasta stað landsins.
Á svæðinu eru átta náttúrulegar heitar laugar af mismunandi stærðum og hitastigi sem liggja alveg við sjávarsíðuna. Hópurinn getur slakað á í heitu vatninu, notið útsýnisins yfir Hvalfjörð eða kælt sig niður með dýfu í sjóinn á milli lauga.
Hvammsvík er aðeins í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík, sem gerir staðinn tilvalinn sem hluta af starfsmannadegi, óvissuferð eða afslappaðri hópferð.
Upplifunin
Gestir fá að njóta lauganna á eigin hraða og upplifunin hentar því bæði þeim sem vilja einfaldlega slaka á og þeim sem vilja prófa að fara á milli heitra lauga og kalds Atlantshafsins.
Samspil sjávarfalla, náttúrulegs umhverfis og jarðhitans gerir það að verkum að upplifunin getur verið aðeins öðruvísi í hvert skipti sem komið er.
Á staðnum er einnig hægt að fá sér mat og drykki og gera heimsóknina að enn stærri hluta af deginum.
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.


