Employee trips
/
Afþreying
/
Reykjavík
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Spennan, hraðinn og keppnisskapið fara á fullt þegar vinnufélagarnir setjast undir stýri og takast á um hver á hraðasta hringinn!
Hjá GT Akademíunni fær hópurinn að upplifa alvöru kappakstursstemningu í hágæða hreyfihermum sem líkja eftir akstri kappakstursbíla. Þið finnið fyrir hröðuninni, bremsunum, beygjunum og þegar dekkin missa grip án þess þó að þurfa að hafa áhyggjur af beyglum eða hraðasektum!
Hægt er að velja úr fjölbreyttum bílum og brautum og því geta bæði byrjendur og reyndari ökumenn fundið eitthvað við sitt hæfi. Svo er bara að spenna beltin, halda einbeitingunni og sjá hver nær besta tímanum.
Fyrir stærri hópa er hægt að setja upp skemmtilega keppni þar sem þátttakendum er skipt niður og fimm hröðustu hringir hvers ökumanns gilda til stiga. Í lokin stendur einn uppi sem hraðasti ökumaður hópsins og fær að sjálfsögðu mont réttinn á vinnustaðnum!
Frábær starfsmannaafþreying fyrir hópa sem vilja upplifa hraða, spennu og vinalega keppni og komast að því hver er hinn sanni kappakstursmeistari vinnustaðarins.
Í boði
• Hágæða hreyfihermar sem líkja eftir hreyfingum bílsins
• Fjölbreytt úrval bíla og kappakstursbrauta
• Keppni á milli vinnufélaga
• Hentar bæði byrjendum og reyndari ökumönnum
• Aðstoð frá starfsfólki GT Akademíunnar
• Setustofa þar sem hópurinn getur slakað á á milli aksturslota
Staðsetning: Faxatorg, Reykjavík 107
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.





