GT Akademían

Hópefli

Reykjavík

Stærð hóps

5-24 manns

Verð frá

5.990 kr

Spennan, hraðinn og keppnisskapið fara á fullt þegar vinnufélagarnir setjast undir stýri og takast á um hver á hraðasta hringinn!


Hjá GT Akademíunni  fær hópurinn að upplifa alvöru kappakstursstemningu í hágæða hreyfihermum sem líkja eftir akstri kappakstursbíla. Þið finnið fyrir hröðuninni, bremsunum, beygjunum og þegar dekkin missa grip án þess þó að þurfa að hafa áhyggjur af beyglum eða hraðasektum!


Hægt er að velja úr fjölbreyttum bílum og brautum og því geta bæði byrjendur og reyndari ökumenn fundið eitthvað við sitt hæfi. Svo er bara að spenna beltin, halda einbeitingunni og sjá hver nær besta tímanum.


Fyrir stærri hópa er hægt að setja upp skemmtilega keppni þar sem þátttakendum er skipt niður og fimm hröðustu hringir hvers ökumanns gilda til stiga. Í lokin stendur einn uppi sem hraðasti ökumaður hópsins  og fær að sjálfsögðu mont réttinn á vinnustaðnum!


Frábær starfsmannaafþreying fyrir hópa sem vilja upplifa hraða, spennu og vinalega keppni  og komast að því hver er hinn sanni kappakstursmeistari vinnustaðarins.


Í boði

• Hágæða hreyfihermar sem líkja eftir hreyfingum bílsins

• Fjölbreytt úrval bíla og kappakstursbrauta

• Keppni á milli vinnufélaga

• Hentar bæði byrjendum og reyndari ökumönnum

• Aðstoð frá starfsfólki GT Akademíunnar

• Setustofa þar sem hópurinn getur slakað á á milli aksturslota


Staðsetning: Faxatorg, Reykjavík 107


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.