Employee trips

/

Afþreying

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Hópefli

Reykjavík

Group size

5-15 manns

Price from

2.500 kr

About the trip


Fótbolti og golf í einum og sama leiknum. Einföld uppskrift að skemmtilegri keppni, góðri stemningu og smá monti á vinnustaðnum!


Fótboltagolfið hjá Skemmtigarðinum  er frábær hópafþreying þar sem markmiðið er einfalt: að koma boltanum í holuna í sem fæstum spörkum. Hópurinn fer saman um 12 holu völlinn og fljótt kemur í ljós hverjir búa yfir leyndum fótboltahæfileikum  og hverjir þurfa aðeins fleiri spörk til að rata rétta leið!


Það þarf enga sérstaka reynslu til að taka þátt og því hentar fótboltagolf vel fyrir fjölbreytta starfsmannahópa. Hér snýst þetta fyrst og fremst um að hafa gaman saman, njóta útiverunnar og bæta smá vinalegri keppni inn í daginn.


Fyrir hópa sem vilja gera meira úr upplifuninni er hægt að halda sérstakt fótboltagolfmót. Þá er hópnum skipt í lið, valdir fyrirliðar og keppt bæði um sigurinn og í ýmsum skemmtilegum aukaþrautum. Starfsmaður fylgir hópnum og að sjálfsögðu lýkur mótinu með verðlaunaafhendingu.


Afslöppuð og skemmtileg hópafþreying sem sameinar útiveru, hreyfingu og keppnisskap og hentar jafnt þeim sem elska fótbolta og þeim sem hitta sjaldnast í mark!


Auka upplýsingar: 

• Hægt að koma með sinn eigin fótbolta eða leiga á staðnum.


Staðsetning: Gufunesvegur, 112 Reykjavík 


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.