Fótbolti og golf í einum og sama leiknum. Einföld uppskrift að skemmtilegri keppni, góðri stemningu og smá monti á vinnustaðnum!
Fótboltagolfið hjá Skemmtigarðinum er frábær hópafþreying þar sem markmiðið er einfalt: að koma boltanum í holuna í sem fæstum spörkum. Hópurinn fer saman um 12 holu völlinn og fljótt kemur í ljós hverjir búa yfir leyndum fótboltahæfileikum og hverjir þurfa aðeins fleiri spörk til að rata rétta leið!
Það þarf enga sérstaka reynslu til að taka þátt og því hentar fótboltagolf vel fyrir fjölbreytta starfsmannahópa. Hér snýst þetta fyrst og fremst um að hafa gaman saman, njóta útiverunnar og bæta smá vinalegri keppni inn í daginn.
Fyrir hópa sem vilja gera meira úr upplifuninni er hægt að halda sérstakt fótboltagolfmót. Þá er hópnum skipt í lið, valdir fyrirliðar og keppt bæði um sigurinn og í ýmsum skemmtilegum aukaþrautum. Starfsmaður fylgir hópnum og að sjálfsögðu lýkur mótinu með verðlaunaafhendingu.
Afslöppuð og skemmtileg hópafþreying sem sameinar útiveru, hreyfingu og keppnisskap og hentar jafnt þeim sem elska fótbolta og þeim sem hitta sjaldnast í mark!
Auka upplýsingar:
• Hægt að koma með sinn eigin fótbolta eða leiga á staðnum.
Staðsetning: Gufunesvegur, 112 Reykjavík
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.


