Employee trips

/

Afþreying

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Útivist

Reykjavík

Group size

8–120 manns

Price from

10.990 kr

About the trip


Fjórhjólaævintýri: Einkatúr fyrir ykkar hóp!


Smá adrenalín, stórkostlegt útsýni og fullt af fjöri með hópnum.

Fjórhjólaferð með Safari Quads  er frábær leið til að brjóta upp daginn, komast út í íslenska náttúru og gera eitthvað skemmtilegt saman og allt þetta aðeins um 15 mínútum frá Reykjavík.


Hópurinn fær einkaferð, þannig að þið eruð bara með ykkar fólki og leiðsögumanni. Það gerir upplifunina persónulegri og gefur hópnum tækifæri til að njóta ævintýrisins saman á sínum hraða.


Ferðirnar eru sveigjanlegar og hægt er að velja allt frá 1 klst. til 3 klst. ferðir, allt eftir því hvað hentar hópnum best. Hvort sem þið viljið stutt og skemmtilegt ævintýri eða lengri ferð með meira fjöri og útsýni. Á leiðinni er keyrt um fjölbreytt landslag með flottu útsýni yfir Reykjavík og nágrenni. Engin fyrri reynsla á fjórhjóli er nauðsynleg. leiðsögumenn fara yfir öryggi og notkun áður en lagt er af stað.


Fjórhjólaferð er líka tilvalin sem hluti af heildar dagskrá fyrir hópinn. Sameinið fjórhjólaævintýrið við aðra afþreyingu, góðan mat eða skemmtilega samveru og búið til dag sem hópurinn mun tala um lengi. Hvort sem tilefnið er starfsmannadagur, hópefli, árangri fagnað eða einfaldlega löngu kominn tími á að gera eitthvað skemmtilegt saman, teymið á það skilið! 


Innifalið: Hlífðargalli, hanskar, hjálmur, lambhúshetta og einnig regnföt ef þarf. 


Staðsetning: Lambhagavegur 19, Reykjavik 113


 

Fjórhjólaferð

Starfsmannaferðir, hópefli, árshátíðir og aðra viðburði fyrirtækja og hópa sem vilja upplifa eitthvað nýtt saman.

Fjórhjólaferð

Fjórhjól, hjálmur, öryggisbúnaður og leiðsögn allan tímann. Einnig er hægt að bæta við kaffi eða léttum veitingum eftir ferð gegn vægu gjaldi.

Fjórhjólaferð

Mælt er með að klæðast hlýjum og þægilegum fatnaði. Ferðin fer fram óháð veðri innan skynsamlegra marka og er löguð að aðstæðum hverju sinni.

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.