Fjórhjólaferð

Útivist

Reykjavík

Stærð hóps

8–120 manns

Verð frá

10.990 kr

Fjórhjólaævintýri: Einkatúr fyrir ykkar hóp!


Smá adrenalín, stórkostlegt útsýni og fullt af fjöri með hópnum.

Fjórhjólaferð með Safari Quads  er frábær leið til að brjóta upp daginn, komast út í íslenska náttúru og gera eitthvað skemmtilegt saman og allt þetta aðeins um 15 mínútum frá Reykjavík.


Hópurinn fær einkaferð, þannig að þið eruð bara með ykkar fólki og leiðsögumanni. Það gerir upplifunina persónulegri og gefur hópnum tækifæri til að njóta ævintýrisins saman á sínum hraða.


Ferðirnar eru sveigjanlegar og hægt er að velja allt frá 1 klst. til 3 klst. ferðir, allt eftir því hvað hentar hópnum best. Hvort sem þið viljið stutt og skemmtilegt ævintýri eða lengri ferð með meira fjöri og útsýni. Á leiðinni er keyrt um fjölbreytt landslag með flottu útsýni yfir Reykjavík og nágrenni. Engin fyrri reynsla á fjórhjóli er nauðsynleg. leiðsögumenn fara yfir öryggi og notkun áður en lagt er af stað.


Fjórhjólaferð er líka tilvalin sem hluti af heildar dagskrá fyrir hópinn. Sameinið fjórhjólaævintýrið við aðra afþreyingu, góðan mat eða skemmtilega samveru og búið til dag sem hópurinn mun tala um lengi. Hvort sem tilefnið er starfsmannadagur, hópefli, árangri fagnað eða einfaldlega löngu kominn tími á að gera eitthvað skemmtilegt saman, teymið á það skilið! 


Innifalið: Hlífðargalli, hanskar, hjálmur, lambhúshetta og einnig regnföt ef þarf. 


Staðsetning: Lambhagavegur 19, Reykjavik 113


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.