Employee trips

/

Sköpun & Upplifun

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Sköpun & Upplifun

Reykjavík

Group size

5-15 manns

Price from

12.990 kr

About the trip


Pastaskóli Grazie Trattoria : Ítölsk stemning og pasta frá grunni


Hnoðið, rúllið og útbúið ykkar eigið ferska pasta. Pastaskóli Grazie Trattoria er skemmtileg og bragðgóð hópaupplifun þar sem ítölsk matargerð og góð samvera fara saman.


Pastaskólinn hjá  Grazie Trattoria er frábær afþreying fyrir hópa sem vilja gera eitthvað öðruvísi saman. Undir handleiðslu Zylli, yfirkokks Grazie, fær hópurinn að kynnast leyndardómum ítalskrar pastagerðar og læra handtökin við að búa til ferskt pasta frá grunni.


Byrjað er á að kynnast sögu pastans, mismunandi pastategundum og hvaða sósur passa best með hverri tegund. Síðan er brett upp ermarnar og hópurinn býr til ferskt ravioli og tagliatelle, bæði í höndunum og með pastavél.


Þegar vinnunni er lokið tekur eldhúsið við, eldar pastað og parar það með góðri sósu. Að lokum sest hópurinn saman og nýtur afrakstursins með góðum drykkjum, enda fátt betra en að borða pasta sem maður hefur búið til sjálfur!


Skemmtileg starfsmannaafþreying þar sem allir geta tekið þátt, lært eitthvað nýtt og notið góðrar máltíðar saman  með smá Ítalíu í hjarta Reykjavíkur.


Innifalið: Kennsla og leiðsögn, fræðsla um pasta og sósur, pastagerð frá grunni, ferskt ravioli og tagliatelle, eldun á pastanu, sósa og máltíð ásamt drykkjum.


Staðsetning: Grazie Trattoria, Hverfisgata 96, 101 Reykjavík.


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.