Employee trips
/
Afþreying
/
Reykjavík
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Paintball í Skemmtigarðinum, hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari?
Hasar, góð taktík og nóg af keppnisskapi í Paintball í Skemmtigarðinum fær hópurinn tækifæri til að sleppa aðeins fram af sér beislinu og takast á í fjörugri liðakeppni!
Safnið liðinu saman, setjið upp grímurnar og undirbúið ykkur fyrir fjöruga liðakeppni þar sem reynir á samvinnu, útsjónarsemi og skjót viðbrögð. Hópnum er skipt í lið sem takast á í fjölbreyttum leikjum og fljótt kemur í ljós hverjir eru taktíkerar hópsins og hverjir æða beint af stað!
Spilað er á þremur mismunandi paintball völlum: Nuketown, Villta Vestrinu og Pýramídanum sem gefur leikjunum fjölbreytni og gerir upplifunina enn skemmtilegri.
Paintball er frábær leið til að koma hópnum út úr hversdagsleikanum og gera eitthvað allt öðruvísi saman. Hér fá allir að taka þátt, vinna saman með sínu liði og að sjálfsögðu reyna að tryggja sér mont réttinn á vinnustaðnum daginn eftir.
Frábær hópafþreying fyrir vinnufélaga sem vilja hasar, samvinnu og skemmtilega keppni og upplifun sem hópurinn gleymir seint.
Innifalið
• 2 klukkustunda paintball-upplifun
• 100 paintball-skot á mann
• Hlífðarbúnaður og galli
• Fjölbreyttir leikir og liðakeppni
• Þrír mismunandi paintball-vellir
• Lágmarksfjöldi er 6 manns
Eftir hasarinn er hægt að gera meira úr deginum með mat og drykkjum á staðnum. Í boði eru meðal annars pizzur, hamborgarar og ýmsir plattar, auk drykkja.
Athugið: Þátttakendur 18 ára og yngri þurfa leyfisbréf/vottorð.
Staðsetning: Gufunesvegur, 112 Reykjavík
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.




