Employee trips

/

Afþreying

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Hópefli

Reykjavík

Group size

5- 300 manns

Price from

2.890 kr

About the trip


Oche: leikur, matur og góð stemning á einum stað


Píla, shuffle, karókí eða ykkar eigið einkaherbergi? Hjá Oche er nóg um að velja og auðvelt að setja saman skemmtilegt kvöld fyrir hópinn.


Oche er frábær kostur fyrir hópa sem vilja gera meira en bara eitt. Skorið á vinnufélagana í tæknivæddri pílu, takið slaginn við shuffle-borðið eða sjáið hver leynist með stórstjörnuhæfileika í KaraOche. Fyrir hópa sem vilja hafa sitt eigið rými er einnig hægt að bóka einkaherbergi með pílu, shuffle og skjám.


Það besta er að skemmtunin þarf ekki að stoppa þegar leiknum lýkur. Á staðnum er bæði veitingastaður og bar og hægt er að njóta matar og drykkja fyrir, á meðan eða eftir leik. Matseðillinn er sérstaklega hugsaður til að auðvelt sé að deila réttum og njóta þeirra samhliða afþreyingunni.


Hvort sem markmiðið er létt keppni milli vinnufélaga, karókíkvöld, starfsmannapartý eða heill hópviðburður er hægt að sníða heimsóknina að hópnum.


Fullkomið fyrir hópa sem vilja blanda saman leik, keppnisskapi, mat, drykkjum og góðri stemningu, allt á einum stað.


Möguleikar í boði

• Tæknivædd píla með fjölbreyttum leikjum

• Shuffleborð

• KaraOche ( karókíherbergi)

• Einkaherbergi fyrir allt að 26 gesti með tveimur pílubásum og shuffle-borði

• Veitingastaður og fjölbreyttir smáréttir

• Bar og úrval drykkja og kokteila

• Möguleiki á að sameina mat, drykki og afþreyingu

• Aðstaða fyrir starfsmannahópa og stærri viðburði


Aldurstakmark:  Eftir kl. 22:00 gildir 20 ára aldurstakmark.

Staðsetning: Kringlan 


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.