Employee trips
/
Slökun
/
Reykjavík
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Mýrarkot SPA
Slakið á saman í notalegu og einkaafskekktu SPA rétt fyrir utan Reykjavík.
Mýrarkot SPA er tilvalið fyrir starfsmannahópa sem vilja hægja aðeins á sér, njóta góðrar samveru og hafa alla aðstöðuna út af fyrir sig. Staðurinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Úlfarsfell og aðeins um 15 mínútna akstur frá miðbæ Reykjavíkur.
Aðstaðan
Í Mýrarkot SPA eru tveir stórir heitir pottar þar sem hópurinn getur slakað á saman, ásamt sauna, köldu kari og útisturtu.
Rúmgóðir búningsklefar eru á staðnum með sturtum og salernum.
Yfirbyggð og skjólgóð verönd umlykur pottana, með borðum og stólum fyrir hópinn. Þar er tilvalið að setjast niður á milli baða, njóta léttra veitinga og eiga góða stund saman.
Gerið meira úr deginum
Einnig er hægt að leigja sal á staðnum gegn aukagjaldi, sem hentar vel fyrir hópa sem vilja sameina SPA upplifunina við veitingar, fund, skemmtun eða aðra dagskrá.
Þannig er hægt að gera Mýrarkot að heilli upplifun fyrir starfsmannahópinn byrja daginn á dagskrá eða veitingum og enda síðan á afslöppun í pottunum og sauna.
Í Spa eru:
Tveir stórir heitir pottar
Sauna
Kalt kar
Útisturta
Búningsklefar og sturtur
Yfirbyggð verönd með borðum og stólum
Mýrarkot SPA er leigt út fyrir hópa og því fær hópurinn aðstöðuna út af fyrir sig.
Hámarksfjöldi: Allt að 20 manns
Leigutími: 4 klst.
Staðsetning: Um 15 mínútur frá miðbæ Reykjavíkur
Frábær kostur fyrir starfsmannaferðir, hópefli, óvissuferðir, gæsanir og steggjanir.
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.





