Employee trips

/

Afþreying

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Á sjó

Reykjavík

Group size

8–12 manns

Price from

21.990 kr

About the trip


Hvernig væri að sjá Reykjavík frá allt öðru sjónarhorni, beint af sjónum með Jetski?


Skellið ykkur á sjóinn með Reykjavík Jetski, njótið ferska sjávarloftsins og upplifið borgina og strandlengjuna á skemmtilegan og öðruvísi hátt!


Jetski er frábær afþreying fyrir hópinn sem vill prófa eitthvað nýtt og fá smá spennu í daginn. Þið brunið um Faxaflóann undir leiðsögn reyndra leiðsögumanna, njótið útsýnisins og fáið líka tækifæri til að leika ykkur aðeins á Jetski á öruggum svæðum.


Á leiðinni gefst tími til að njóta útsýnisins, stoppa á fallegum stöðum og smella af nokkrum góðum myndum. Þetta er skemmtileg blanda af hraða, útiveru og náttúru og ekki á hverjum degi sem vinnufélagarnir hittast úti á sjó á Jetski! 


Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og farið er yfir öryggi og helstu handtök áður en lagt er af stað. Allur nauðsynlegur búnaður er einnig innifalinn, svo hópurinn getur einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli,  að njóta ferðarinnar og hafa gaman saman! 


Hægt er að velja um 1 eða 2 klst. á Jetski, allt eftir því hvað hentar hópnum og dagskránni best. Styttri ferðin er tilvalin til að bæta smá ævintýri inn í starfsmannadaginn, en tveggja tíma ferðin fyrir þá sem vilja fara lengra, njóta meira af umhverfinu og gera enn meira úr upplifuninni.


Innifalið: Hlýr undirgalli,vatnsheldur þurrgalli, hlýir skór, hanskar, björgunarvesti, hjálmur með andlitshlíf og samskiptabúnaði


Stasetning: Gufunesvegur,113 Reykjavík


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.