Employee trips

/

Sköpun & Upplifun

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Sköpun & Upplifun

Reykjavík

Group size

8-16 manns

Price from

17.900 kr

About the trip


Þitt eigið ilmvatn hjá URÐ: skapaðu þinn eigin ilm


Hvaða ilmur lýsir þér best? Kafið inn í heim ilmefna og sköpunar og blandið saman ykkar eigin einstaka ilmvatni undir leiðsögn URÐ.


„Þitt eigið ilmvatn“ hjá URР er skemmtileg og öðruvísi upplifun fyrir starfsmannahópa sem vilja prófa eitthvað skapandi saman. Hópurinn fær að kynnast heimi ilmvatnsgerðar, mismunandi ilmnótum og því hvernig ólíkir tónar vinna saman til að skapa heildstæðan ilm.


Síðan tekur sköpunargleðin við. Hver þátttakandi velur þá ilmi sem höfða mest til hans og vinnur að sinni eigin blöndu. Útkoman verður persónulegur ilmur sem hver og einn fær að taka með sér heim.


Hér snýst upplifunin ekki um keppni heldur að prófa sig áfram, skapa og eiga notalega stund með vinnufélögunum.


Skapandi og persónuleg starfsmannaafþreying þar sem hópurinn fær að uppgötva heim ilmefna  og allir fara heim með sinn eigin einstaka ilm.


Innifalið:  Kennsla og leiðsögn í ilmvatnsgerð, ilmefni og hráefni ásamt eigin ilmvatni sem hver þátttakandi býr til.


Staðsetning: URÐ, Fiskislóð 81, 101 Reykjavík.


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.