Employee trips

/

Afþreying

/

Selfoss

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Hópefli

Selfoss

Group size

8-60 manns

Price from

21.990 kr

About the trip


Flúðasigling niður Hvítá með Arctic Rafting 


Grípið árarnar og gerið ykkur klár í fjörugt ævintýri á Hvítá þar sem samvinna, íslensk náttúra og smá adrenalín fara saman!


Flúðasigling með  Arctic Rafting  er frábær afþreying fyrir hópa sem vilja prófa eitthvað spennandi saman. Siglt er niður jökulána Hvítá þar sem skemmtilegar flúðir, falleg gljúfur og stórbrotið landslag skapa upplifun sem hópurinn gleymir seint.


Hér skiptir samvinnan máli, allir fá sína ár og þurfa að vinna saman undir leiðsögn reynds flúðaleiðsögumanns til að koma bátnum niður ána. Á milli flúðanna gefst svo tími til að njóta náttúrunnar, stemningarinnar og útsýnisins yfir Brúarhlöð.


Engin fyrri reynsla af flúðasiglingu er nauðsynleg og hópurinn fær allan nauðsynlegan búnað og öryggisleiðbeiningar áður en lagt er af stað.

Í hverjum bát eru að jafnað i 8–10 þátttakendur og Arctic Rafting tekur á móti bæði minni og stærri starfsmannahópum. Fyrir hópa er einnig hægt að óska eftir sérferð þar sem hópurinn fær ána út af fyrir sig.


Eftir ævintýrið er tilvalið að halda áfram að njóta samverunnar í Drumbó, bækistöð Arctic Rafting. Þar bíða heitir pottar, sauna og sturtur og einnig er veitingastaður og bar á staðnum.


Frábær afþreying fyrir hópa sem vilja hreyfingu, samvinnu, smá adrenalín og eftirminnilegan dag saman í íslenskri náttúru.


Innifalið: Blautbúningur, neoprene-skór, björgunarvesti, hjálmur, ár, leiðsögn reynds flúðaleiðsögumanns ásamt aðgangi að heitum pottum, sturtum og saunu eftir ferðina.


Fjöldi: 8–10 manns í hverjum bát. Hægt er að taka á móti stærri hópum með fleiri bátum og sérsníða ferðina að hópnum.


Staðsetning: Drumbó River Base, Drumboddsstaðir, 806 Selfoss við Hvítá á Gullna hringnum, um 1,5 klst. akstur frá Reykjavík.


Gott að hafa með: Sundföt, handklæði, hlý ullar eða flísföt undir blautbúninginn, ullarsokka og þurr föt til skiptanna.


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.