Employee trips
/
Afþreying
/
Reykjavík
/
Fjórhjólaferð
About the trip
Bogfimisetrið: hittið í mark með hópnum!
Hver í hópnum er með öruggustu höndina og hver hittir beint í mark þegar á reynir?
Bogfimi er skemmtileg og öðruvísi hópafþreying þar sem einbeiting, nákvæmni og smá keppnisskapur fá að njóta sín. Hópurinn fær leiðsögn í grunnatriðum bogfiminnar áður en tekið er til við að skjóta svo það þarf enga fyrri reynslu til að taka þátt.
Þegar allir eru komnir með tökin á boganum er um að gera að stilla upp, miða og sjá hver hittir næst miðjunni. Það kemur oft skemmtilega á óvart hverjir reynast leyniskyttur hópsins!
Bogfimi hentar vel fyrir starfsmannahópa sem vilja prófa eitthvað nýtt saman í afslappaðri stemningu. Hægt er að gera upplifunina að léttri keppni eða einfaldlega njóta þess að prófa sig áfram og fagna góðum skotum vinnufélaganna.
Skemmtileg blanda af einbeitingu, keppnisskapi og góðri stemningu,þar sem allir fá tækifæri til að hitta beint í mark.
Staðsetning: Dugguvogur 104, Reykjavik
Inquiry about this service
Inquiry about this service
Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.
No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.


