Employee trips

/

Afþreying

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Hópefli

Reykjavík

Group size

10 -35 manns

Price from

5,900kr

About the trip



Bjór, bruggun og góð stemning! 


Langar ykkur að gera eitthvað öðruvísi og skemmtilegt með hópnum? Í Bjórskólanum fáið þið að kynnast heimi bjórsins, fræðast um bjórbruggun og að sjálfsögðu smakka úrval af góðum bjórum á meðan þið njótið samverunnar.


Upplifunin byrjar á stórum bjór (500 ml)  við komu þar sem hægt er að velja á milli lagerbjórs og Session IPA. Ostar og maul bíða á borðunum á meðan hópurinn kemur sér fyrir og stemningin fer af stað.


Því næst tekur við skemmtileg og fróðleg kynning á bjórbruggun ásamt túr um brugghúsið. Þar fáið þið að skyggnast á bak við tjöldin, sjá hvernig bjórinn verður til og kynnast ferlinu frá upphafi til enda.


Að túrnum loknum er komið að bjórsmakki með leiðsögn, þar sem þið smakkið fjóra mismunandi bjóra, 150 ml hvert smakk. Tilvalið tækifæri til að kynnast ólíkum bjórstílum og bragðtónum – og jafnvel uppgötva nýjan uppáhaldsbjór!


Innifalið:

• 500 ml bjór við komu – lager eða Session IPA

• Ostar og maul á borðum

• Fræðsla um bjór og bjórbruggun

• Leiðsögn um brugghúsið

• Fjögur 150 ml bjórsmökk með leiðsögn


Bjórskólinn tekur um 80–90 mínútur og er frábær kostur fyrir starfsmannahópa sem vilja eiga skemmtilega stund saman, læra eitthvað nýtt og smakka góðan bjór.


Skál fyrir góðri stemningu! 

 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.