Employee trips

/

Afþreying

/

Reykjavík

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Hópefli

Reykjavík

Group size

5-60 manns

Price from

6.800 kr

About the trip


Badminton hjá TBR:  hreyfing, keppni og góð stemning


Grípið spaðana og skorið á vinnufélagana í badminton. Skemmtileg og létt hópafþreying þar sem hreyfing, keppnisskapur og góð stemning fara saman.


Badminton hjá TBR er frábær kostur fyrir starfsmannahópa sem vilja hreyfa sig og gera eitthvað skemmtilegt saman. Það þarf ekki að vera atvinnumaður með spaðann til að taka þátt, leikurinn hentar jafnt byrjendum sem þeim sem hafa spilað áður.


Skiptið hópnum niður á velli, spilið einliða eða tvíliða og bætið við smá vinalegri keppni. Fyrir þá sem vilja gera meira úr leiknum er tilvalið að setja upp lítið vinnustaðamót og sjá hverjir standa uppi sem badmintonmeistarar hópsins.


TBR er með 17 badmintonvelli í tveimur íþróttahúsum, svo aðstaðan hentar vel fyrir hópa þar sem hægt er að dreifa þátttakendum á fleiri velli og koma mörgum í leik á sama tíma.


Frábær starfsmannaafþreying fyrir hópa sem vilja hreyfingu, hlátur og smá keppnisskap og skemmtilega leið til að brjóta upp hversdagsleikann.


Tímalengd:  Hver badmintontími er 50 mínútur.


Búnaður: Spaðar og badmintonkúlur eru ekki innifalin í vallarleigu. Hægt er að leigja eða kaupa spaða hjá TBR og kaupa badmintonkúlur á staðnum.


Aðstaða: 17 badmintonvellir í tveimur íþróttahúsum, búningsklefar og sturtuaðstaða.


Staðsetning: TBR, Gnoðarvogur 1, 104 Reykjavík.


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.