Sjóstöng

Á sjó

Reykjavík

Stærð hóps

8-60 manns

Verð frá

18.490 kr

Sjóstangveiði með Special Tours: veiði, fjör og ferskur af li


Haldið út á Faxaflóa, kastið út línunni og sjáið hver í hópnum landar stærsta fiskinum. Skemmtileg sjóferð þar sem góð stemning, smá keppnisskapur og ferskur afli fara saman.


Sjóstangveiði með Special Tours er skemmtileg og öðruvísi afþreying fyrir starfsmannahópa sem vilja njóta samverunnar úti á sjó. Siglt er frá Gömlu höfninni í Reykjavík út á gjöful fiskimið Faxaflóa þar sem hópurinn fær að spreyta sig á veiðinni.


Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og reynd áhöfn aðstoðar hópinn við veiðarnar. Um borð eru 18 veiðistangir og fyrir stærri hópa geta tveir til þrír deilt stöng. Hægt er að taka á móti allt að 60 manns í sérferðinni.


Viljið þið bæta aðeins meiri keppni og fjöri við ferðina er hægt að setja upp ýmsa leiki fyrir hópinn. Svo kemur einn skemmtilegasti hluti ferðarinnar á heimleiðinni  aflinn er grillaður um borð og hópurinn fær að njóta þess að smakka afrakstur dagsins saman.


Hópnum er einnig frjálst að taka með sér drykki og önnur aðföng um borð og gera þannig enn meira úr samverunni.


Frábær afþreying sem sameinar sjóferð, veiði, léttan keppnisskap og góða stemningu með nýgrilluðum afla í lokin.


Lengd: 2,5–3 klst.


Innifalið: 18 veiðistangir, nauðsynlegur veiðibúnaður, reynd áhöfn og grillun á aflanum í lok ferðar.


Aðstaða: Salerni um borð og hópnum er heimilt að taka með sér drykki og önnur aðföng.


Staðsetning:  Gamla höfnin í Reykjavík.


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.