Pizza Skólinn

Sköpun & Upplifun

Reykjavík

Stærð hóps

8-16 manns

Verð frá

12.900 kr

Pizzaskóli Grazie Trattoria: Búið til ykkar eigin Napoli pizzu


Hnoðið deigið, veljið áleggið og komist að því hver í hópnum á framtíðina fyrir sér sem pizzabakari. Bragðgóð og skemmtileg upplifun með ítölsku ívafi!


Pizzaskólinn hjá Grazie Trattoria  er tilvalin afþreying fyrir hópa sem vilja læra eitthvað nýtt, hafa gaman saman og að sjálfsögðu enda upplifunina á góðri pizzu.


Undir leiðsögn Miguel, sem hefur starfað á nokkrum af bestu pizzastöðum Evrópu, fær hópurinn að kynnast handtökunum á bak við alvöru Napoli pizzu. Þið lærið að gera pizzadeig og ítalska pizzusósu ásamt því að fá góð ráð um hvernig best er að para saman álegg, ost og krydd.


Að sýnikennslunni lokinni er komið að hópnum sjálfum. Hver og einn býr til sína eigin pizzu og svo er auðvitað besti hlutinn eftir að setjast saman, gæða sér á afrakstrinum og njóta drykkjar með.


Skemmtileg og bragðgóð afþreying þar sem góð samvera, ítölsk matargerð og smá sköpunargleði fara saman. Buon appetito!


Lengd: Um 1,5 klst.


Innifalið: Sýnikennsla og leiðsögn, fræðsla um pizzadeig og ítalska pizzusósu, hráefni og gerð á eigin pizzu ásamt léttvínsglasi, bjór eða öðrum drykk að eigin vali.


Staðsetning: Grazie Trattoria, Hverfisgata 96, 101 Reykjavík.


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.