Bullseye: hittið beint í mark með hópnum
Píla, karókí, matur og góð stemning! hjá Bullseye er auðvelt að setja saman skemmtilega stund fyrir vinnufélagana þar sem allir geta verið með.
Bullseye er frábær staður fyrir starfsmannahópa sem vilja blanda saman léttri keppni, góðum mat og skemmtun. Takið slaginn í pílu og sjáið hver reynist leynimeistari vinnustaðarins eða veljið partí-pílu þar sem fjölbreyttir og skemmtilegir leikir gera það að verkum að engin sérstök pílukunnátta er nauðsynleg.
Viljið þið bæta enn meira fjöri við kvöldið? Þá er hægt að skella sér í prívat karókíherbergi og komast að því hver í hópnum hefur haldið sönghæfileikunum leyndum hingað til!
Hægt er að gera heimsóknina að heilli kvöldstund með mat og drykkjum. Bullseye býður upp á fjölbreytta hópapakka þar sem hægt er að sameina pílu, hlaðborð og drykki. Fyrir hópa sem vilja meira hópefli er einnig hægt að bæta við stjórnanda sem skipuleggur liðakeppni fyrir hópinn.
Skemmtileg starfsmannaafþreying þar sem keppnisskapur, hlátur og góð stemning fara saman. Hvort sem þið viljið hitta beint í mark, taka lagið eða einfaldlega njóta góðrar stundar saman.
Möguleikar í boði
• Klassísk sjálfteljandi píla
• Partí-píla með fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum
• Prívat karókíherbergi
• Hópefli og liðakeppni með stjórnanda
• Matur og hlaðborð fyrir hópa
• Drykkir og drykkjamiðar
• Hópapakkar sem sameina pílu, mat og drykki
• Möguleiki á einkarými/salarleigu fyrir stærri hópa
Staðsetning: Austurbæjarbíói: Snorrabraut 37, Reykjavík 105
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.


