Kokteilaskólinn

Sköpun & Upplifun

Reykjavík

Stærð hóps

12–40 manns

Verð frá

9.990 kr

Kokteilaskólinn: Hristið upp í stemningunni! Góðir kokteilar, skemmtileg stemning og enn betri félagsskapur! 


Kokteilaskólinn er frábær afþreying fyrir starfsmannahópa sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og öðruvísi saman. Hér fá allir að taka þátt, grípa í kokteilhristarann og læra að útbúa góða drykki undir leiðsögn kokteilameistara.


Í boði eru nokkrar mismunandi útfærslur og námskeið, þannig að auðvelt er að finna eitthvað sem hentar stærð og stemningu hópsins. Hægt er að velja klassískt kokteilnámskeið eða gera meira úr hópeflinu þar sem þátttakendur vinna saman og spreyta sig á kokteilgerð. 


Námskeiðin geta farið fram í glæsilegum sal Kokteilaskólans,  Spritz Venue í miðbæ Reykjavíkur, en einnig er hægt að fá Kokteilaskólann til ykkar og gera skemmtilega dagskrá þar sem hópurinn er.


Setjið hversdaginn aðeins til hliðar og leyfið kokteilhristaranum að taka við!  Hér blandast saman skemmtun, smá fróðleikur og góð stemning á meðan hópurinn lærir handtökin á bak við góða drykki, prófar sig áfram og lærir nokkur góð trix.


Staðseting: Rauðarárstígur 27,105 Reykjavík (eða þeir koma til ykkar)


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.