Hellaferð

Hópefli

Reykjavík

Stærð hóps

5-48 manns

Verð frá

8.990 kr

Raufarhólshellir:


Gangið inn í annan heim og upplifið krafta íslenskrar náttúru frá alveg nýju sjónarhorni aðeins um 30 mínútum frá Reykjavík.


Ferð í  Raufarhólshelli  er skemmtileg og fróðleg upplifun fyrir starfsmannahópa sem vilja gera eitthvað öðruvísi saman. Gengið er inn í einn lengsta hraungang Íslands og fetað í fótspor hrauns sem rann þar fyrir um 5.200 árum.


Í hefðbundnu ferðinni leiðir reyndur leiðsögumaður hópinn inn í hellinn þar sem áhrifamikil lýsing dregur fram litbrigði, hraunmyndanir og ummerki þeirra gríðarlegu náttúruafla sem mótuðu hellinn. Göngubrýr og stígar hafa verið lagðir yfir erfiðustu kaflana og því er ferðin aðgengileg flestum.


Fyrir hópa sem vilja meiri áskorun er einnig hægt að velja Hraunfossaævintýrið, þar sem farið er lengra og dýpra inn í hellinn að stórbrotnum hraunfossum. Sú ferð er líkamlega krefjandi og ætluð þeim sem eru í góðu formi og hafa gott jafnvægi.


Hefðbundin ferð: Um 55–60 mínútur í hellinum.


Tilvalið til að sameina með annari afþreyingu yfir daginn!


Einstök afþreying þar sem náttúra, jarðfræði og góð samvera mætast og hópurinn fær að sjá Ísland frá sjónarhorni sem fæstir upplifa í hversdagsleikanum.



Einnig í boði: Hraunfossaævintýrið fyrir minni hópa sem vilja krefjandi 3–4 klst. hellaferð.


Innifalið:  Leiðsögn um hellinn, hjálmur og ljós. Mannbroddar eru útvegaðir á veturna þegar þörf er á.


Gott að hafa með:  Hlý föt og góða gönguskó. Vatnsheld eða vatnsfráhrindandi yfirhöfn er einnig góð hugmynd.


Staðsetning:  um 30–35 mínútna akstur frá Reykjavík.



 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.