Fálkaklettur: ævintýri rétt fyrir utan Reykjavík!
Langar ykkur að gera eitthvað öðruvísi saman? Fálkaklettur er frábær hópupplifun fyrir 5–30 manna hóp a sem vilja komast út úr hversdagsleikanum, ögra sér aðeins og eiga skemmtilega stund saman.
Via Ferrata leiðin í Fálkakletti sameinar útiveru, stórkostlegt útsýni, smá adrenalín og góða samveru. Engin fyrri klifurreynsla er nauðsynleg, þannig að þetta er frábært tækifæri fyrir hópinn til að prófa eitthvað nýtt saman. Og það besta? Ævintýrið er stutt frá Reykjavík, svo það þarf hvorki heilan dag né langt ferðalag til að komast út úr hversdagsleikanum og skapa skemmtilegar minningar með vinnufélögunum.
Innifalið: Ferð í Fálkaklett með leiðsögn á íslensku og allur nauðsynlegur búnaður: hjálmur, belti, Via Ferrata kit og hanskar.
Gerið meira úr deginum!
Eftir ævintýrið er hægt að enda daginn saman við Esjustofu, þar sem möguleiki er á grilli og leigu á aðstöðu. Fullkomin leið til að slaka á eftir klifrið, fá sér eitthvað gott að borða og rifja upp afrek dagsins
Klifur, hlátur, smá adrenalín og grill á eftir – ansi góð uppskrift að eftirminnilegum degi með hópnum!
Innifalið: Ferð í Fálkaklett með leiðsögn á íslensku og allur nauðsynlegur búnaður: hjálmur, belti, Via Ferrata kit og hanskar.
Staðsetning: Mógilsvegur 1, 162 Reykjavík (við Esjuna)
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.





