Buggy ferðir: hraði, náttúra og fjör.
Setjist undir stýri og gerið ykkur klár í spennandi upplifun um fjölbreyttar slóðir í nágrenni Reykjavíkur, þar sem fallegt landslag og skemmtilegur akstur skapa eftirminnilegt ævintýri fyrir hópinn.
Buggy ferðir með Safari Quad s eru frábær leið til að brjóta upp hversdagsleikann og gera eitthvað spennandi saman. Hér sameinast akstur, útivera og íslensk náttúra í fjörugri upplifun sem hentar vel fyrir starfsmannahópa.
Hægt er að velja á milli mismunandi ferða eftir því hversu langan tíma hópurinn vill verja í ævintýrið. Í boði eru 1 klst., 1,5 klst. og 2 klst. ferðir, svo auðvelt er að finna upplifun sem passar inn í dagskrá hópsins.
Engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Áður en lagt er af stað fær hópurinn kennslu á bílana, öryggisleiðbeiningar og nauðsynlegan búnað. Reyndir leiðsögumenn Safari Quads fylgja hópnum og sjá til þess að allir geti notið ferðarinnar.
Tveir geta deilt Buggy bíl og því er upplifunin ekki síður skemmtileg fyrir farþegann. Einnig er hægt að velja að vera einn í bíl fyrir þá sem vilja hafa stýrið alveg fyrir sig.
Frábær starfsmannaafþreying fyrir hópa sem vilja smá hraða, útiveru og skemmtilegt ævintýri og skapa góðar minningar saman.
Innifalið: Hjálmur, hlýr hlífðargalli, hanskar, lambhúshetta og regnfatnaður eftir þörfum.
Athugið: Ökumenn þurfa að vera með gilt ökuskírteini.
Staðsetning: Lambhagavegur 19, 113 Reykjavík
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.



