Bubblebolti: fjör, hlátur og vinaleg keppni
Hvað gerist þegar vinnufélagarnir fara í stórar uppblásnar kúlur og reyna að spila fótbolta? Það verður nóg af hlátri, skrautlegum tilþrifum og óvæntum veltum!
Í bubblebolta klæðast þátttakendur uppblásnum kúlum og taka þátt í fótbolta eða ýmsum skemmtilegum hópeflisleikjum. Hér fær keppnisskapið að njóta sín, en það getur reynst jafn mikil áskorun að halda jafnvægi og að skora mark.
Hópeflisstjóri leiðir hópinn í gegnum klukkutíma dagskrá sem er sniðin að þátttakendum. Að jafnaði eru átta boltar í notkun og hópnum skipt í allt að fjögurra manna lið sem skiptast á að spila eftir leikjum og stemningu.
Hægt er að taka á móti hópum af öllum stærðum. Fyrir færri en átta þátttakendur eru í boði leikir sem henta smærri hópum, en fyrir stærri hópa er hægt að útvega fleiri bolta og sérsníða dagskrána eftir óskum. Bæði fullorðins- og barnaboltar eru í boði.
Á sumrin er tilvalið að njóta fjörsins utandyra, til dæmis á Klambratúni. Fyrir hópa sem kjósa að vera innandyra er hægt að finna viðeigandi aðstöðu.
Frábær afþreying fyrir starfsmannahópa sem vilja hreyfingu, hlátur og skemmtilega keppni og eiga eitthvað til að tala um á kaffistofunni daginn eftir!
Verð og innifalið
Verð er 5.000 á mann á klukkustund fyrir hópinn. Innifalið er klukkutíma dagskrá með hópeflisstjóra, uppsetning og frágangur bolta ásamt akstri til og frá staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.





